|
Í hlutanna eðli
"Það eru margir skemmtilegir munir á Árbæjarsafni. Ég rakst á bleika
pottaleppa sem voru gerðir löngu áður en feministar frelsuðu bleika
litinn. Þeir voru festir saman með langri snúru til að konan gæti hengt þá
á sig, þá voru þeir alltaf við höndina. Þetta var skólaskyldustykki
stúlkna. Það skein samt af þessum pottaleppum að þeir höfðu verið í
höndunum á sterkri ákveðinni konu. Mig langaði allt í einu til að gera
karlmannspart og setja í hendurnar á henni og vita hvað mundi gerast. Það
var framlag mitt á þessa sýningu."
- Dagný Guðmundsdóttir. Úr sýningarskrá.
|
|
|